Lúxuslíf Saint Wests

Kanye West, Kim Kardashian og dóttir þeirra North West.
Kanye West, Kim Kardashian og dóttir þeirra North West. Skjáskot Mirror

Lífið virðist leika við Saint West, son raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian og rapparans Kanye West, ef marka má frétt vefmiðilsins Mirror.

Fregnir herma að dagskrá snáðans, sem er átta vikna gamall, sé þéttskipuð en tvær barnfóstrur og hjúkrunarfræðingur eru foreldrum hans til halds og trausts og sjá um allar hans helstu þarfir.

Þá er því haldið fram að drengurinn hlýði meðal annars á lifandi flutning á verkum Vivaldis og Beethovens daglega til þess að hvetja til tónlistarlegs þroska.

„Eftir að hafa fengið að borða syngur ein barnfóstran fyrir Saint á frönsku, auk þess sem hún nuddar hann með sérstökum afrískum olíum. Því næst les hún fyrir hann sögur, bæði á frönsku og ensku,“ er haft eftir ónafngreindum heimildarmanni.

„Kanye skimar yfir sögurnar til að ganga úr skugga um að þær feli bæði í sér fjölbreytni og hugrekki,“ bætti hann síðan við.

„Barnfóstrurnar fara daglega með piltinn í göngutúr og er sagt að einskorða sig ekki við einn stíg því drengurinn þurfi að upplifa fjölbreytt áreiti, svo sem hljóð og lykt.“

Skringilegasta fullyrðingin er þó sennilega sú að starfsfólk Kardashian/West-hjónanna þurfi að fylgjast með og skrá niður upplýsingar um hægðir drengsins.

Þá eru hjónin sögð greiða 70.350 dollara á mánuði fyrir hjálpina, sem samsvarar rúmlega 9 milljónum íslenskra króna.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson