Er Kylie Minogue trúlofuð?

Söngkonan geislar af hamingju, og fjölmiðlar velta fyrir sér hvort …
Söngkonan geislar af hamingju, og fjölmiðlar velta fyrir sér hvort brúðkaup sé á næsta leyti. Skjáskot Daily Mail

Söngkonan Kylie Minogue hefur ekki farið leynt með aðdáun sína á kærastanum, leikaranum Joshua Sasse. Skötuhjúin fóru að slá sér upp á síðasta ári, en þau kynntust við tökur á þáttunum Galavant, þar sem Minogue fór með lítið hlutverk.

Undanfarið hefur Minogue sést skarta forláta demantshring og velta fjölmiðlar því nú fyrir sér hvort Sasse hafi beðið um hönd hennar.

Áður en turtildúfurnar fundu hvort annað hafði söngkonan lýst því yfir að hún væri tilbúin að slaka á útlitskröfum til þess að finna ástina.

„Ég hef ekkert á móti gráu hári, ég hef ekkert á móti manni með skalla, eða manni með hár sem farið er að þynnast“ lýsti Minogue yfir.

Hún þurfti þó alls ekki að slá af kröfum sínum, enda er Sasse 20 árum yngri en hún og hvorki grá- né þunnhærður.

Frétt Daily Mail

Mörgum þykir sennilegt að demantshringurinn sem Minogue hefur skartað undanfarna …
Mörgum þykir sennilegt að demantshringurinn sem Minogue hefur skartað undanfarna daga sé trúlofunarhringur. Skjáskot Daily Mail
Leikarinn Joshua Sasse og söngkonan Kylie Minogue taka sig vel …
Leikarinn Joshua Sasse og söngkonan Kylie Minogue taka sig vel út saman. Skjáskot af Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson