Er þetta nýjasta parið í Hollywood?

Vel fór á með Bloom og Perry á Golden Globe …
Vel fór á með Bloom og Perry á Golden Globe verðlaununum. Skjáskot Daily Mail

Fjölmiðlar hafa farið mikinn undanfarið, enda hefur talsvert oft sést til söngkonunnar Katy Perry og leikarans Orlandos Blooms upp á síðkastið.

Sögusagnirnar fóru fyrst á kreik eftir Golden Globe-verðlaunaafhendinguna, enda þótti viðstöddum skötuhjúin daðra fremur hressilega.

Síðan þá hafa Perry og Bloom sést nokkuð oft saman, en á miðvikudaginn sáust þau snæða kvöldverð á veitingastað í Hollywood, líkt og fram kemur í frétt Daily Mail.

Bloom var áður giftur fyrirsætunni Miröndu Kerr, en saman eiga þau soninn Flynn. Perry var hins vegar í hjónabandi með grínistanum Russell Brand, en leiðir þeirra skildi árið 2011.

Skötuhjúin voru samferða á veitingastaðinn, og segja sjónarvottar að þau …
Skötuhjúin voru samferða á veitingastaðinn, og segja sjónarvottar að þau hafi haldist í hendur. Skjáskot Daily Mail
Söngkonan virtist kampakát þegar hún yfirgaf veitingahúsið.
Söngkonan virtist kampakát þegar hún yfirgaf veitingahúsið. Skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson