Superbowl-börnin slá í gegn

Þessi börn fæddust 9 mánuðum eftir að New York Giants …
Þessi börn fæddust 9 mánuðum eftir að New York Giants unnu Superbowl árið 2008. Mynd/Youtube

Stuðningsmenn íþróttaliða eiga það til að fagna vel þegar liðinu gengur vel. Þannig virðist tölfræði vestanhafs benda til þess að fæðingum fjölgi skyndilega í heimaborg sigurliðsins níu mánuðum eftir Superbowl, úrslitaleik NFL.

Nú hafa forsvarsmenn NFL leitað uppi nokkur börn sem kalla má Superbowl-börn, og eiga þau það sameiginlegt að hafa fæðst níu mánuðum eftir að liðið sem foreldrarnir studdu vann Superbowl.

Í þessu skemmtilega myndbandi eru þau saman komin og syngja saman lagið Kissed By A Rose eftir söngvarann Seal. Sjón er sögu ríkari. Superbowl fer einmitt fram nú í kvöld þar sem liðin Carolina Panthers og Denver Broncos mætast. Þá stendur aðeins sú spurning eftir hvort fæðingatíðnin í Carolina eða Denver rýkur upp að níu mánuðum liðnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant