Allir þeir leikarar og leikstjórar sem tilnefndir eru til Óskarsverðlaunanna í ár munu fá í hlut sinn gjafapoka troðfullan af ýmsum munaðarvörum og -upplifunum sem mörg fyrirtæki vonast til að koma muni þeim á kortið.
Þeir sem tilnefndir eru í helstu flokkunum munu þannig fara heim með gjafapoka að andvirði 200 þúsund Bandaríkjadala, eða sem nemur rúmum 25 milljónum íslenskra króna. Meðal annars má þar finna gjafabréf í brjóstalyftingu, kynlífsleikfang og fría 15 daga gönguferð um Japan.
Verðmæti þessarar vænu gjafapyngju slær öll fyrri met en í fyrra var hún aðeins metin á um 125 þúsund Bandaríkjadali. Mest munar þar um gjafabréf í 10 daga ferð á fyrsta farrými til Ísraels, sem metin er á 55 þúsund dali, en gönguferðin um Japan er þar rétt á eftir í 45 þúsund dölum.
Þá er einnig í boði ótakmörkuð leiga á Audi-bifreiðum í heilt ár og lífstíðarbirgðir af Lizora húðkremum. Kvenkyns tilnefningarhafar munu þá fá að gjöf svokallaðan „eggjanda“ sem býður upp á „blíðan sogkraft og örvun“.