Jolie frumsýnir ný húðflúr

Angelina Jolie stillir sér upp fyrir frumsýningu Kung Fu Panda …
Angelina Jolie stillir sér upp fyrir frumsýningu Kung Fu Panda 3. AFP

Leikkonan og leikstjórinn Angelina Jolie er sérlega hrifin af húðflúrum, enda skartar hún ófáum slíkum. Nú hefur hún bætt þremur nýjum í safnið, en flúrin er að finna á baki hennar.

Jolie hefur lýst því yfir að henni þyki gaman að skreyta líkama sinn táknum og myndum sem hafa sérstaka merkingu fyrir hana, en nýju  flúrin virðast vera forn búddísk tákn og möntrur.

Samkvæmt frétt Daily Mail eru flúrin líklega eftir Ajarn Noo Kanpai, sem áður hefur séð um að skreyta húð Jolie. Leikkonan skartar meðal annars stærðarinnar tígrisdýri á bakinu sem Kanpai gerði árið 2004.

Jolie dvelst um þessar mundir í Kambódíu við tökur á nýrri kvikmynd, First They Killed My Father, sem hún bæði skrifaði handrit að og leikstýrir. Kvikmyndin er byggð á skáldsögu Loung Ung, sem lifði af borgarastyrjöldina sem geisaði í landinu á áttunda áratugnum.

Hér má sjá nýju flúrin henner Jolie.
Hér má sjá nýju flúrin henner Jolie. Skjáskot Daily Mail
Árið 2014 var að finna talsvert færri húðflúr á baki …
Árið 2014 var að finna talsvert færri húðflúr á baki leikkonunnar. Skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson