PJ Harvey og Holter á Airwaves

PJ Harvey kemur fram á Airwaves.
PJ Harvey kemur fram á Airwaves. mynd/pjharvey.net

Búið er að tilkynna að tvær frábærar tónlistarkonur komi fram á Iceland Airwaves-hátíðinni í ár sem haldin verður í nóvember. Þetta eru þær PJ Harvey, sem hefur í tvo áratugi verið ein virtasta tónlistarkona samtímans, og Julia Holter, sem átti eina bestu plötu síðasta árs að margra mati.

Önnur nöfn sem búið er að tilkynna eru Sturla Atlas, Reykjavíkurdætur, MR Silla, Mammút, Lush og þá mun Múm koma fram með hinum virta Kronos Quartet. Það er því ljóst að konur verða áberandi á hátíðinni.

Í apríl kemur út platan The Hope Six Demolition Project sem beðið hefur verið með mikilli eftirvæntingu en síðast gaf Harvey út Let England Shake sem þykir eitt af hennar allra bestu verkum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson