Eru Rob og Blac Chyna trúlofuð?

Slúðurmiðlar velta því fyrir sér hvort Rob Kardashian og Blac …
Slúðurmiðlar velta því fyrir sér hvort Rob Kardashian og Blac Chyna séu búin að trúlofa sig? Skjáskot Intouch Weekly

Samband Rob Kardashian og fyrirsætunnar Blac Chyna hefur vakið talsverða eftirtekt slúðurmiðla undanfarið. Fyrirsætan er nefnilega barnsmóðir og fyrrverandi kærasta Tyga, sem er núverandi kærasti Kylie Jenner, sem aftur er hálfsystir Rob Kardashian.

Eins og fjölskylduböndin séu ekki nógu flókin fyrir virðist vera sem skötuhjúin Chyna og Kardashian hafi trúlofað sig. Chyna sást skarta forláta demantshring á dögunum þar sem hún sletti úr klaufunum með vinkonu sinni, fyrirsætunni Amber Rose, sem vill svo skemmtilega til að er fyrrverandi kærasta Kanye West, sem eins og flestir vita er einnig eiginmaður Kim Kardashian.

Ónefndur heimildarmaður sagði að Kardashian hefði fallið kylliflatur fyrir fyrirsætunni. „Hún gerir hann sérlega hamingjusaman, en þetta er í fyrsta skipti í mörg ár sem hann er svo jákvæður og bjartsýnn.“

Frétt Mirror 

Demantshringurinn sem kom sögusögnunum af stað.
Demantshringurinn sem kom sögusögnunum af stað. Skjáskot Mirror
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson