Gaf kærustunni glænýjan Lexus

Jude Law er andlit Lexus RX.
Jude Law er andlit Lexus RX. Skjáskot blog.lexus.co.uk

Jude Law er nýtt andlit bílaframleiðandans Lexus. Það þarf því kannski ekki að undra að hann hafi leitað á náðir fyrirtækisins þegar hann fann gjöf fyrir kærustuna, sálfræðinginn Philippu Coan, á dögunum.

Law og Coan hafa farið afar leynt með samband sitt, en þau byrjuðu að slá sér upp í maí á síðasta ári.

Haft var eftir ónefndum heimildarmanni Daily Mail að Law væri frá sér numinn af vitsmunum Coan og væri staðráðinn í því að klúðra sambandinu ekki. Þá á hann að hafa greint frá því hversu hressandi það er að eiga í sambandi við konu sem er ekki viðriðin skemmtanabransann.

Jude Law skildi við Sadie Frost, eiginkonu hans til sex ára, árið 2003 en saman eiga þau þrjú börn. Þá á hann einnig tvö börn sem komu í heiminn eftir að hjónabandi hans og Frost lauk.

Coan var himinlifandi með nýja bílinn.
Coan var himinlifandi með nýja bílinn. Skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant