Segir karlmenn hræðast hana

Dakota Johnson segir að karlmenn óttist hana.
Dakota Johnson segir að karlmenn óttist hana. AFP

Dakota Johnson segir að hlutverk hennar í kvikmyndinni Fifty Shades of Grey hafi gert það að verkum að karlmenn þori ekki að stíga í vænginn við hana.

Johnson, sem er dóttir leikaranna Don Johnson og Melanie Griffin, fer með hlutverk Anastasiu Steele í þríleiknum en fyrsta myndin leit dagsins ljós á síðasta ári.

„Sumir halda að þetta sé eitthvað sem ég hef áhuga á í mínu persónulega lífi, sem er ekki raunin. Ég er leikkona, ég geri mér þetta upp. Ég býst við að þetta sé eitthvað sem hendir marga leikara, fólk heldur að þeir séu persónurnar sem þeir taka að sér að leika“ sagði Johnson í samtali við vefmiðilinn Mirror.

Leikkonan sagði skilið við kærasta sinn, tónlistarmanninn Matt Hitt, á síðasta ári og viðurkennir að hún verði stundum örlítið einmana.

„Lífið mitt hefur tekið ótrúlegum breytingum. Stundum verð ég einmana, en þá les ég bara bækur og horfi á kvikmyndir. Ég er glöð að ég hef tíma til að gera þessa hluti. Ég nýt einverunnar.“

„Sem betur fer hugsa ég ekki oft um karlmenn. Öll orka mín fer í starfið mitt um þessar mundir.“

Tökur á Fifty Shades Darker hefjast á næstunni, en hún verður að öllum líkindum frumsýnd í febrúar á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant