Hver er huldukonan?

Leikarinn Liam Neeson á í sambandi við sérlega fræga, en …
Leikarinn Liam Neeson á í sambandi við sérlega fræga, en ónefnda konu. Skjáskot Google

Leikarinn Liam Neeson greindi frá því á dögunum að hann sé í tygjum við ótrúlega fræga konu, en vildi þó ekki gefa upp nafn hennar af ótta við að gera hana vandræðalega.

Síðan Neeson greindi frá huldukonunni hafa fjölmiðlar, sem og aðdáendur leikarans, verið á yfirsnúningi við að reyna að komast að því hver sú heppna er. Margar konur hafa verið nefndar í því samhengi, svo sem leikkonan Kristen Stewart, en fjölmiðlafulltrúi Neesons var fljótur að jarða þann misskilning, líkt og fram kemur í frétt Mirror.

Þá hafa farið fram fjörugar umræður á samfélagsmiðlum þar sem fleiri nöfnum var kastað fram, þeirra á meðal eru leikkonurnar Halle Berry, Charlize Theron, Diane Keaton og Helen Mirren.

Joe Crilly, talsmaður veðmálasíðunnar William Hill, greindi síðan frá því að á þeim bænum þætti leikkonan Susan Sarandon líklegust til að vera leynikærastan. Fast á hæla hennar fylgir síðan Charlize Theron, en Diane Lane, Uma Thurman og Meg Ryan hafa einnig verið nefndar.

„Það er ekki ljóst hverjum Liam Neeson er skotinn í, en Susan Sarandon er efst á lista“ sagði Joe Crilly sem augljóslega er ástarlíf leikarans hugleikið.

Frétt mbl.is: Í tygjum við ótrúlega fræga konu

Marga grunar að leikkonan Susan Sarandon sé leynikærasta Neesons.
Marga grunar að leikkonan Susan Sarandon sé leynikærasta Neesons. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant