Sonurinn elskar að klæða sig eins og Mary Poppins

Rod Stewart á átta börn með fimm konum.
Rod Stewart á átta börn með fimm konum. Mynd / Cover Media

Rokkarinn Rod Stewart greindi frá því á dögunum að yngsti sonur hans, hinn fimm ára Aiden, hefði sérlega gaman að því að klæðast fötum af móður sinni. Rokkarinn, sem sjálfur er þekktur fyrir frjálslegan klæðaburð, er sérlega lukkulegur með drenginn þó hann vonist til þess að hann vaxi upp úr áhuga sínum á Mary Poppins.

Stewart sem er átta barna faðir grínaðist með það í viðtali að elsti sonur hans, Sean, væri ágætur fótboltamaður sem hefði áhuga á að opna næturklúbb. Þá sagði hann að Liam, sem hann ætti með fyrrverandi eiginkonu sinni Rachel Hunter, væri atvinnumaður í íshokkí.

Þegar talið barst síðan að yngsta syninum sagði Stewart: „Og sá stutti. Við vitum ekki ennþá hvað hann ætlar að leggja fyrir sig. Honum finnst gaman að klæða sig eins og kona, svo við vitum ekki hvað hann er að hugsa. Hann er alltaf að klæða sig upp sem Mary Poppins.“

„Ef í ljós kemur að hann er samkynhneigður er mér alveg sama. Svo lengi sem hann er hamingjusamur.“

Frétt Daily Mail.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson