Kim stillti sér upp í Bláa lóninu

Kim og Stephanie bregða á leik.
Kim og Stephanie bregða á leik. Skjáskot frá @KimKanyeKimYe

Kardashian klanið kom og fór og þeir sem voru orðnir þreyttir á þeim vörpuðu öndinni léttar. Þau okkar sem kunna að meta þau Kim, Kourtney og Kanye héldum kannski að við þyrftum að bíða þar til kæmi að Íslandsþætti Keeping Up With the Kardashians til þess að frétta meira af ferðinni en þar skjátlaðist okkur hrapalega.

Aðdáendasíðan @KimKanyeKimYe á Twitter birti í dag fjölda mynda úr Íslandsför hersingarinnar sem sýna systurnar skemmta sér í Bláa lóninu ásamt aðstoðarmanni Kim, Stephanie Sheppard.

Kim skellti sér upp við vegg.
Kim skellti sér upp við vegg. Skjáskot @KimKanyeKimYe

Kim skartaði flegnum sundbol og stillti sér að sjálfsögðu upp fyrir myndatöku, bæði í lóninu sjálfu og á bökkum þess. Kanye virðist hinsvegar jafnvel ekki hafa farið ofan í þar sem hann er kappklæddur á einu myndinni sem @KimKanyeKimYe birti af honum.

Eins og sjá má var Kanye kappklæddur og virtist ekki …
Eins og sjá má var Kanye kappklæddur og virtist ekki hafa hug á að demba sér í lónið. Skjáskot @KimKanyeKimYe
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant