Leiðast kynlífssenurnar

Dakota Johnson og Jamie Dornan við tökur á Fifty Shades …
Dakota Johnson og Jamie Dornan við tökur á Fifty Shades Darker. Skjáskot Mirror

Margir öfunda eflaust leikkonuna Dakota Johnson af starfi sínu, en hún leikur um þessar mundir í kvikmyndinni Fifty Shades Darker.

Johnson fer með hlutverk Anastasiu Steele, ástarviðfangs auðjöfursins Christian Gray sem leikinn er af Jamie Dornan.

Sjálf er Johnson ekki mikið að kippa sér upp við starfið, heldur segist vera orðin þreytt á kynlífssenunum.

„Ég er að kvikmynda næstu tvær myndir í Fifty Shades þríleiknum og í dag er ég að mynda kynlífssenu. Það er ekki þægilegt, og í raun fremur þreytandi,“ sagði leikkonan í samtali við tímaritið Interview Magazine.

„Við stundum ekki alvöru kynlíf. Ég hef hinsvegar verið að líkja eftir kynlífi í sjö klukkustundir samfleytt, og búin að fá leið á því.“

Áætlað er að Fifty Shades Darker verði frumsýnd á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant