Rousey reynir fyrir sér í sjónvarpi

Ronda Rousey og kærasti hennar, Travis Browne.
Ronda Rousey og kærasti hennar, Travis Browne. Skjáskot Daily Mail

Bardagakempunni Ronda Rousey virðist margt til lista lagt, en hún hefur nú skrifað undir samning við sjónvarpsstöðina Lifetime.

Rousey, sem helst er þekkt fyrir fimi sína innan hringsins, hefur fengið það hlutverk að þróa efni fyrir sjónvarp, alls þrjár sjónvarpsmyndir. Samkvæmt frétt Deadline eiga allar myndirnar það sameiginlegt að vera valdeflandi, sem að sögn er bardagakappanum afar mikilvægt.

Eftir að Rousey þurfti að lúta í lægra haldi fyrir Holly Holm á síðasta ári hefur hún einbeitt sér að því að byggja upp tækifæri innan Hollywood, sem nú virðist vera að borga sig.

Auk Rousey munu Serena Williams og Janet Jackson einnig taka að sér að framleiða sitt hvora myndina fyrir sjónvarpsstöðina Lifetime.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant