Nýjar myndir af Karlottu prinsessu

Karlotta stillir sér sposk upp fyrir móður sína.
Karlotta stillir sér sposk upp fyrir móður sína. Ljósmynd/ Facebook

Karlotta prinsessa fagnar eins árs afmæli sínu á morgun og af því tilefni birti breska konungsfjölskyldan nýjar myndir af henni á Facebook síðu sinni.

Í færslunni kemur fram að móðir hennar Katrín hertogaynja af Cambridge hafi tekið myndirnar sjálf í apríl á heimili þeirra í Norfolk. 

Þó svo að Karlotta klæðst fallegum kjólum og fíngerðum prjónapeysum á myndunum væri auðvelt að ætla fljótt á litið að þarna væru gamlar myndir af Georgi prins á ferð. En þó systkinin deili sömu bústnu kinnunum og hugsandi augnaráðinu, er Karlotta dökkhærðari en bróðir sinn, og skartar að auki forláta slaufu í hárinu, í stíl við kjólinn hverju sinni.

Karlotta nýtur þess að leika sér úti.
Karlotta nýtur þess að leika sér úti. Ljósmynd/ Facebook
Það er ekki alltaf hlaupið að því að sitja kyrr.
Það er ekki alltaf hlaupið að því að sitja kyrr. Ljósmynd/ Facebook
Prinsessan er afar lík stóra bróður sínum en þó er …
Prinsessan er afar lík stóra bróður sínum en þó er hún með dekkra hár. Ljósmynd/ Facebook
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson