Nýjasta gæludýrið sköllóttur naggrís

Katie Price er mikil dýrakona.
Katie Price er mikil dýrakona. Skjáskot The Sun

Það er líklega sjaldnast mikil lognmolla í kringum fyrrverandi glamúrfyrirsætuna Katie Price, en auk þess að vera fimm barna móðir heldur hún fjöldann allan af gæludýrum. Sum hver afar hefðbundin, önnur kannski síður.

Á dögunum vakti Price mikla úlfúð þegar hún lét raka mynstur á lendar hesta sinna, en hún og fjölskylda hennar eiga þónokkur hross.

Frétt mbl.is: Katie Price gerir alla brjálaða, aftur

Price heldur þó ekki eingöngu hross, en hún á fjölmörg önnur gæludýr. Til að mynda heimilishundinn Kevin. Þess að auki heldur hún gæsir og svín.

Þá á fjölskyldan lítinn broddgölt, en nýjasta viðbótin í gæludýraflóruna er líklega hárlaus naggrís sem Price finnst afar huggulegt að leyfa að kúra í hálsakoti sínu.

Out cutie eating 😘😘

A video posted by Katie Price (@officialkatieprice) on Mar 28, 2016 at 12:35pm PDT

Price finnst ósköp notalegt að kúra með hárlausa naggrísnum sínum.
Price finnst ósköp notalegt að kúra með hárlausa naggrísnum sínum. Skjáskot Instagram / Katie Price
Price með andarunga sem er nýskriðinn úr eggi.
Price með andarunga sem er nýskriðinn úr eggi. mbl
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant