David Hasselhoff genginn út

Hayley Roberts og unnusti hennar, David Hasselhoff.
Hayley Roberts og unnusti hennar, David Hasselhoff. Skjáskot Hellomagazine.com

David Hasselhoff, er genginn út en hann trúlofaðist á dögunum kærustu sinni Hayley Roberts.

Leikarinn, sem líklegast er þekktastur fyrir hlutvers sitt sem Mitch Buchannon í hinum goðsagnakenndu þáttum Baywatch, skellti sér á skeljarnar í rómantískri lautarferð á dögunum.

„Ég átti mér orðatiltæki, þú gengur ekki í hjónaband vegna þess að þig langar að búa með einhverjum. Þú giftir þig því þú getur ekki lifað án einhvers,“ sagði leikarinn í samtali við tímaritið Hello.

„Þannig leið mér. Ég vissi að ég væri afar óhamingjusamur án hennar. Ég beið þó með bónorðið því mér fannst ég of gamall,“ bætti hinn 63 ára gamli leikari við.

Roberts, sem er 36 ára, segir þó að aldursbilið angri hana ekki vitund.

„Ég hef ekki áhyggjur af því. Ég vil ekki missa af því að eyða tíma með einhverjum sem ég elska vegna einhvers sem gæti átt sér stað síðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson