Söngkonan Mariah Carey lék á als oddi á tónleikum í gær þegar hún gaf dansara sínum einn vandræðalegasta kjöltudans sögunnar. Meðfylgjandi er myndband frá tónleikunum.
Carey settist klofvega yfir dansarann Bryan Tanaka og áhorfendur fögnuðu. Tanaka, sem er fótbrotinn og gat því ekki dansað á sviði Carey, var með bundið fyrir augun en það stoppaði hann ekki frá því að taka málin í sínar hendur. Hann greip um Carey og sveiflaði henni til og frá og Carey varð mjög óörugg og virtist missa jafnvægið á einhverjum tímapunkti.
Þess má geta að Carey er nýtrúlofuð og vilja einhverjir meina að það sé ástæðan fyrir að hún fór í kerfi þegar Tanaka tók af henni völdin og byrjaði að strjúka hana hátt og lágt.