Klæddist Beyoncé húðinni á Becky?

Beyoncé stillir sér upp fyrir ljósmyndara.
Beyoncé stillir sér upp fyrir ljósmyndara. AFP

Ekkert var til sparað þegar Met Gala fögnuðurinn fór fram í gær. Urmull af stórstjörnum þrömmuðu rauða dregilinn, klæddar sínu fínasta pússi.

Þeirra á meðal var poppdrottningin Beyoncé, sem nýverið gerði allt vitlaust með plötunni sinni Lemonade.

Líkt og lesa má um í Mirror vakti kjóll söngkonunnar gríðarlega athygli, en hann var gerður úr níðþröngu latexi og vildu margir meina að hann minnti á risavaxinn smokk.

Einn netverji þótti þó slá naglann algerlega á höfuðið, þegar hann velti fyrir sér hvort Beyoncé hefði fláð hjónadjöfulinn Becky með fallega hárið, sem sungið er um á Lemonade.

Í myndbandsverkinu sem fylgir Lemonade má heyra söngkonuna flytja línur úr ljóði sómalsk-breska ljóðskáldsins Warsan Shire.

„If it‘s what you truly want I can wear her skin over mine. Her hair over mine. Her hands as gloves,“ sem útleggja mætti sem: „Ef það er það sem þú raunverulega vilt, get ég klæðst húð hennar yfir minni eigin. Hári hennar yfir mínu. Höndum hennar sem hönskum.“

Samanburðurinn þarf því kannski ekki að koma á óvart.




mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson