Peter Andre trítilóður

Katie Price reitti fyrrverandi eiginmann sinn heldur betur til reiði.
Katie Price reitti fyrrverandi eiginmann sinn heldur betur til reiði. Skjáskot Mirror

Peter Andre, sem eitt sinn var kvæntur glamúrfyrirsætunni Katie Price, er að sögn æfur út í fyrrverandi spúsu sína.

Andre, sem nú er giftur Emily MacDonagh, er að sögn dauðleiður á því að Price tali um hjónaband þeirra við fjölmiðla en hún lýsti því yfir í viðtali að hún hefði í raun aldrei viljað skilja við hann. Þess að auki sagði hún að hjónabandið hafi farið úr skorðum vegna afskipta utanaðkomandi aðila.

„Pete var ævareiður þegar hann heyrði það sem Katie sagði. Þau voru bæði sammála um að þau myndu ekki viðra óhreinan þvott sinn við fjölmiðla,“ sagði ónefndur heimildamaður tímaritsins Closer.

„Emily var í svo miklu uppnámi því henni finnst Katie sýna mikla vanvirðingu með framkomu sinni.“

Price og Andre, sem eiga saman tvö börn, skildu árið 2009 en hvorugt þeirra hefur tjáð sig um hvað varð þess valdandi.

Frétt Mirror

Peter Andre og núverandi eiginkona hans, Emily MacDonagh.
Peter Andre og núverandi eiginkona hans, Emily MacDonagh. Skjáskot Mirror
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant