Synti nakin með konungi poppsins

Jane Fonda er augljóslega mikið gefin fyrir sund.
Jane Fonda er augljóslega mikið gefin fyrir sund. AFP

Leikkonan og líkamsræktarfrömuðurinn Jane Fonda hefur ýmsa fjöruna sopið í gegnum tíðina, en hún greindi frá því að hún hefði til að mynda farið í nektarsund með Michael Jackson.

Spjallþáttadrottningin Ellen Degeneres spurði Fonda hvort fótur væri fyrir því að hún hefði synt nakin með goðinu, og svarið var blátt áfram „auðvitað“.

„Svona gerðist þetta. Hann var í heimsókn hjá mér þegar ég var við tökur á On Golden Pond, og ég var með lítinn kofa við vatnið. Hann dvaldi hjá mér í 8 daga, en eitt kvöld á fullu tungli sagði hann, förum að synda. Þetta var hans hugmynd.“

Fonda greindi jafnframt frá því að söngvarinn hafi ekki verið með sundföt með sér, þau hafi því tekið með sér sloppa, gengið niður að vatni og stokkið út í.

Jackson er ekki eina stórstjarnan sem Fonda hefur svamlað berstrípuð með, en hún greindi einnig frá því að í æsku hefði hún tekið sundsprett með Gretu Garbo.

„Ég var 16 ára og faðir minn hafði leigt hús í Suður-Frakklandi,“ sagði Fonda og bætti við að alltaf hefði verið stríður straumur af stórstjörnum að heimsækja móður hennar. „Dag einn kom síðan Greta Garbo. Hún var í slopp, með risastóra, hvíta sundhettu og stakk sér út í.“

Frétt People

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson