Adele var orðlaus

Adele er sérlega hrifin af Beyoncé.
Adele er sérlega hrifin af Beyoncé. Skjáskot Instagram

Heimurinn stóð á öndinni eftir útkomu Lemonade, nýrrar plötu Beyoncé á dögunum. Bæði fjölmiðlar, sem og aðdáendur, hafa farið mikinn og hafa lofað söngkonuna og verk hennar í hástert undanfarna daga.

Sönggyðjan Adele er þar ekki undanskilin, en hún jós poppdrottninguna lofi í færslu sem hún birti á Instagram.

„Ég er ekki sein að meðtaka. Ég hef bara verið orðlaus,“ segir Adele í færslu sinni.  Þá hrósar hún Beyoncé einnig fyrir hæfileika, þokka og vinnusemi og lýsir því jafnframt yfir að hún dýrki söngkonuna og dái.

„Ég met þig svo mikils. Guði sé lof fyrir Beyoncé.“

Svo virðist vera sem virðingin sé gagnkvæm, en fyrir nokkru bárust fregnir að því að Beyoncé hafi frestað útkomu plötu sinnar vegna velgengni Adele.

Frétt mbl.is: Er ný plata á leiðinni?

 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant