Kristen komin með nýja kærustu?

Kristen Stewart stillti sér upp á Met Gala.
Kristen Stewart stillti sér upp á Met Gala. AFP

Ástarlíf leikkonunnar Kristen Stewart hefur verið talsvert á milli tannanna á fólki undanfarið, en hún og franska söngkonan Soko voru að slá sér upp á undaförnum vikum.

Frétt mbl.is: Soko og Stewart yfir sig ástfangnar

Nú virðist þó vera sem upp úr sambandinu hafi slitnað, og eru fjölmiðlar farnir að velta fyrir sér hvort leikkonan sé farin að hitta fyrirsætuna Stellu Maxwell, sem áður átti í sambandi við söngkonuna Miley Cyrus.

Stewart og Maxwell skelltu sér út á lífið eftir Galakvöld Metropolitan listasafnsins sem haldið var á mánudagskvöldið, eins og lesa má í frétt Mirror.

Leiða má líkur að því að Stewart hafi verið áfjáð að láta sig hverfa að fögnuðinum loknum, enda voru bæði fyrrverandi unnusti hennar Robert Pattinson og Liberty Ross á meðal gesta.

Upp úr sambandi Stewart og Pattinsons slitnaði fyrir nokkrum árum þegar upp komst að leikkonan hafði haldið við leikstjórann Rupert Sanders sem þá var kvæntur Liberty Ross.

Stella Maxwell og Miley Cyrus voru eitt sinn par.
Stella Maxwell og Miley Cyrus voru eitt sinn par. Instagram @stellamaxwell
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson