Will Smith gerði börnin sín heldur betur vandræðaleg þegar hann hrósaði móður þeirra, Jada Pinkett Smith, í hástert og rifjaði í leiðinni upp hvernig systkinin komu undir.
„Ég ætla ekki að vera kjánalegur. Ég er hér kominn til að heiðra þig,“ sagði leikarinn á viðburði sjónvarpsstöðvarinnar VH1, sem haldinn var til heiðurs mæðrum í Hollywood.
„Þegar ég horfði á atriðið með krökkunum mundi ég eftir því þegar við bjuggum þau til. Ég gat ekki annað gert en leitt hugann að því. Þetta er bara ótrúlegt, þú einfaldlega tekur Jada Pinkett Smith, óþekktan bæ í Mexíkó, svolítið tequila og stendur svo uppi með frábær börn.“
Hjónin hafa margoft orðið kjaftasögum að bráð, þar sem því er haldið fram að hjónaband þeirra sé í molum. Það virðist þó fjarri sanni, ef marka má orð leikarans.
„Jada er töfrum líkust. Að hluta til er það þess vegna sem ég elska hana, hlutir gerast sem ættu ekki að geta gerst. Hún býr yfir einhverjum töframætti.“
Frétt People