Talsmaður fyrirsætunnar Blac Chyna hefur staðfest að hún á von á barni með Robert Kardashian. Þetta þýðir að nýtt Kardashian-barn er á leiðinni. Þetta mun vera fyrsta barn Roberts.
Chyna á eitt barn fyrir með rapparanum Tyga en Tyga er kærasti Kylie Jenner, systur Roberts. Það er því óhætt að segja að fjölskyldulífið á þeim bænum sé ansi flókið.
Blac Chyna og Robert byrjuðu formlega saman í janúar á þessu ári. Þau trúlofuðu sig svo í apríl og nú eiga þau von á barni. Fregnir herma að þau viti nú þegar kyn barnsins.
Það var talsmaður Chyna sem greindi frá þessu við People.com en parið hafði þó fyrr í dag gefið vísbendingar um þungun Chyna á samfélagsmiðlum.