Líður líkt og dýri í búri

Margir vilja næla sér í ljósmynd af átrúnaðargoðinu.
Margir vilja næla sér í ljósmynd af átrúnaðargoðinu. AFP

Ungstirnið Justin Bieber er búinn að fá sig fullsaddan af sífelldum beiðnum aðdáenda sem vilja smella af honum mynd. Hann hefur því ákveðið að hætta að sitja fyrir með aðdáendum sínum, líkt og fram kemur í orðsendingu söngvarans sem hann deildi á Instagram-síðu sinni.

„Ef það vill svo til að þið rekist á mig, vitið það að ég ætla ekki að sitja fyrir á mynd. Ég er hættur því. Þetta er komið á það stig að fólk heilsar mér ekki einu sinni lengur, eða lítur á mig sem manneskju. Mér líður eins og dýri í dýragarði og mig langar að halda í geðheilsu mína. Ég geri mér grein fyrir því að fólk mun verða fyrir vonbrigðum, en ég skulda engum mynd. Fólk sem segir, en ég keypti plötuna þína, veit að það fékk það sem það borgaði fyrir. Plötu. Það stendur hvergi í smáa letrinu að ljósmynd af mér fylgi.“

Færslan fékk afar misjafnar undirtektir, margir skilja ungstirnið fullkomlega á meðan aðrir eru afar ósáttir og kalla hann öllum illum nöfnum.

Fyrr á árinu greindi Bieber frá því að hann hygðist taka sér frí frá aðdáendum, en tónleikagestum gafst færi á að kaupa svolitla stund í viðurvist hans fyrir og eftir tónleika.

Frétt mbl.is: Justin Bieber að kikna undan álagi

A photo posted by Justin Bieber (@justinbieber) on May 10, 2016 at 3:15pm PDT

 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson