Ástin kviknaði á Íslandi

Rose Leslie og Kit Harington féllu fyrir hvort öðru á …
Rose Leslie og Kit Harington féllu fyrir hvort öðru á Íslandi. AFP

Kit Harington, sem er líklega betur þekktur sem Jon Snow, segir það hafa verið afar auðvelt að falla fyrir kærustunni Rose Leslie.

Harington og Leslie kynntust við tökur á þáttunum Game of Thrones, en rómantíkin tók að blómstra þegar þau voru við tökur á Íslandi.

„Landið er fallegt, norðurljósin eru töfrandi og þar varð ég ástfanginn,“ segir leikarinn í viðtali við ítalska Vogue.

„Ef þú laðast að einhverjum, sem síðan leikur ástarviðfang þitt, er afar auðvelt að verða ástfanginn.“

Skötuhjúin fóru leynt með samband sitt nokkuð lengi, en mættu þó hönd í hönd á Oliver-verðlaunin sem fram fóru í apríl síðastliðnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant