Einstakur leikstjóri

Frá vinstri: Didda Jónsdóttir, Jean-Luc Gaget, meðhöfundur myndarinnar, Skúli Malmquist …
Frá vinstri: Didda Jónsdóttir, Jean-Luc Gaget, meðhöfundur myndarinnar, Skúli Malmquist og Patrick Sobelman framleiðendur. Ljósmynd/Halldór Kolbeins

Á þriðudagskvöld var síðasta bíómynd Sólveigar Anspach, The Together Project, frumsýnd í Cannes við lofsamlegar undirtektir. Þetta er síðasta myndin í sjálfstætt standandi þríleik hennar sem hófst með Skrapp út, síðan kom Queen of Montreuil og núna The Together Project.

Hálfíslenskur leikstjóri

Fyrsta myndin hennar Hertu upp hugann vakti heimsathygli er hún var frumsýnd í Cannes árið 1999. Myndin fjallaði um unga konu sem er barnshafandi en jafnframt með krabbamein. Að hluta til var myndin byggð á eigin reynslu enda hafði Sólveig greinst með krabbamein nokkru fyrr á sama tíma og hún var barnshafandi.

Kvikmyndaleikstjórinn Sólveig Anspach, sem var hálfíslensk og hálfbandarísk en bjó nánast alla sína ævi í Frakklandi lést á síðasta ári úr krabbameini aðeins 54 ára gömul.

Íslenska framleiðslufyrirtækið Zik Zak sem hefur áður unnið að myndum Sólveigar framleiðir myndina ásamt franska framleiðslu fyrirtækinu Agat Films.

Skúli Malmquist er framleiðandi myndarinnar ásamt Patrick Sobelman.

Skúli sem hefur farið með nokkrar bíómyndir til Cannes sagðist aldrei hafa upplifað að uppklapp eftir mynd stæði í fimmtán mínútur.

Ást á sundkennara

Myndin fjallar um Samir, sem er staðráðinn í að bæta ráð sitt gagnvart sundkennara sínum Agathe, sem hann er yfir sig ástfanginn af.

Hann eltir hana alla leið til Íslands en það kemur babb í bátinn þegar hann verður fyrir rafstraumi og missir minnið. Didda Jónsdóttir fer með sama hlutverk í myndinni og hún fór með í hinum tveimur fyrri myndum í þríleiknum.

Stanslaust lófatak

Aðspurður hversvegna Skúli hafi byrjað að vinna með Sólveigu segir hann að hún hafi verið magnaður listamaður og þess vegna auðvelt að ákveða að vinna með henni þegar hann var beðinn. „Hún kom til dyranna eins og hún var klædd,“ segir Skúli. „Kom fram við alla á sama hátt. Einstakur leikstjóri.“

The Together Project var frumsýnd í gærkvöldi í flokknum Director's Forthnight í sama kvikmyndasal og fyrsta myndin hennar Sólveigar var frumsýnd fyrir sautján árum á Cannes. Myndinni var tekið með standandi lófataki í lokin og var fólk bæði glatt og hrært. Það var hjartnæm stund og andi Sólveigar sveif yfir vötnum.

Bíó hélt henni gangandi

Skúli segir að Sólveig hafi barist allt til enda og að markmið hennar að klára kvikmyndina hafi haldið henni gangandi. „Hún var bara þannig manneskja að hún kláraði það sem hún byrjaði á,“ segir Skúli. „Hún var reyndar búin að vinna svo marga bardaga í baráttunni við veikindi sín að maður hélt að henni tækist það enn og aftur. Sólveig skilaði af sér fyrstu útgáfu af klippinu, þann sama dag fór hún á sjúkrahús en kom aldrei aftur.“

Þekkt í Frakklandi

Sólveig er kannski ekki mjög þekkt á Íslandi þótt hún sé hálfíslensk og fæddist í Vestmannaeyjum, en hún hefur náð mikilli hylli í Frakklandi.

Síðasta bíómyndin hennar Lulu femme nue fékk nálægt 500 þúsund áhorfendur í bíó sem þykir ansi gott í hvaða landi sem er í heiminum. Yfirmaður Directors Fortnight deildar Cannes hátíðarinnar, Edouard Waintrop, sem valdi The Together Project inná hátíðina sagði aðspurður hvers vegna hann hefði valið hana að það væri einföld ástæða fyrir því, þetta væri besta gamanmynd sem hann hefði séð í ár.

Hollywood Reporter ánægt

Gagnrýnendur voru þegar farnir að birta álit sitt á síðum blaðanna í gær enda gerast hlutirnir hratt í Cannes. Fram að þessu hafa dómarnir verið einróma lof. Í Hollywood Reporter segir að myndin sé heillandi. Helmingur hennar eigi sér stað á alþjóðlegri ráðstefnu strandvarða, sem sé skemmtilegt út af fyrir sig. Myndin sé skemmtileg frásögn ástfangins manns sem lætur eins og hann kunni ekki að synda til að ná athygli sundkennarans sem hann þráir.

Það þurfi ekki að hafa séð fyrri myndirnar til að njóta þessarar en það sé hægt að sjá þessa karaktera birtast í fyrri mynd í þríleiknum, þótt þeir hafi ekki náð saman þá.

Gagnrýnandinn lýkur orðum sínum á því að segja að með tilliti til þess að leikstjórinn er dáinn þá fær þessi annars bjarta og gleðilega bíómynd óvænt þunglyndislegan undirtón, enda fer maður að þrá að sjá bíómyndirnar sem þessi leikstjóri hefði gert, en mun ekki gera.

Screen er ánægt

Að mati tímaritsins Screen er um mjúka kómedíu að ræða og að aðdáendur fyrri mynda hennar verði ekki fyrir vonbrigðum. Gagnrýnandinn hrósar leik og leikstjórn, sérstaklega fær hinn skrítni húmor myndarinnar athygli.

Skúli segir að Sólveig hafi lengi lifað með því viðhorfi að hver dagur væri gjöf og þess vegna hafi hún nýtt sérhvern dag til skapandi vinnu og gefið af sér við alla sem hún hitti. „Hún vissi að þetta gat verið bæði fyrsta og síðasta skiptið sem hún hitti manneskju og kom þess vegna alltaf yndislega fram við fólk,“ segir Skúli. „Það var mjög gefandi að vinna með henni og ég þakka fyrir að hafa haft tækifæri til þess.“

Frumsýningar víða um heim

Myndin verður frumsýnd í Frakklandi hinn 29. júní og fer í mjög stóra dreifingu, í rúmlega 200 kvikmyndahúsum í landinu.

Hún verður frumsýnd á Íslandi í haust.

Sólveig Anspach.
Sólveig Anspach.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson