Á fáa alvöru vini

Brooklyn Beckham og Chloe Grace Moretz stilltu sér upp á …
Brooklyn Beckham og Chloe Grace Moretz stilltu sér upp á rauða dreglinum í vikunni. AFP

Leikkonan Chloe Grace Moretz hefur leikið í fjölmörgum kvikmyndum þótt ung sé. Í vikunni opinberaði hún samband sitt við Brooklyn Beckham, son hjónanna Davids og Victoriu Beckham. 

Í ítarlegu viðtali við The Edit lýsir Moretz því hvernig það sé að vera ung, fræg leikkona. Segir hún meðal annars frá því hversu erfitt sé að fara á stefnumót. 

„Allir hafa séð mig leika í kynlífsatriðum og allir hafa séð mig gráta. Allir geta lesið viðtöl við mig og vita þar með hverjar uppáhaldshljómsveitirnar mínar eru. Þannig geta allir sagst eiga margt sameiginlegt með mér,“ segir Moretz.

Æska Moretz var mjög óhefðbundin. Foreldrar hennar skildu þegar hún var ung og flutti hún oft. Bjó hún með móður sinni og fjórum bræðrum sínum. Þegar Moretz var 10 ára gömul fékk móðir hennar krabbamein. 

Um svipað leyti komu tveir bræður hennar út úr skápnum. Hún segir að mótlætið sem þeir mættu við að opinbera kynhneigð sína hafi gert hana að baráttukonu fyrir réttindum LGBT-fólks.

Skömmu síðar fór ferill hennar á flug, en hún hefur leikið í myndum á borð við Kick Ass og þáttum á borð við My Name Is Earl, 30 Rock og Desperate Housewives.

Hún segir að móðir hennar vilji að hún leiki í færri myndum. „Hún vill að ég leiki í færri myndum, en undanfarin ár hef ég leikið í 3-6 myndum á ári. Ef ég hætti því held ég að mér myndi fljótlega fara að leiðast,“ segir Moretz.

Hún segir að líf ungrar stjörnu geti verið einmanalegt. „Ég á aðeins eina alvöru vinkonu sem ég treysti. En það er í lagi. Hún er mjög eðlilegur námsmaður,“ segir Moretz. Sjálf fékk hún kennslu hjá móður sinni alla sína æsku.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant