„Chewbacca-konan“ slær í gegn

Gleðisvipur Chewbacca hefur slegið í gegn og fengið milljónir manna …
Gleðisvipur Chewbacca hefur slegið í gegn og fengið milljónir manna til að hlæja. Skjáskot

Myndband sem sýnir bandaríska konu leika sér með Chewbacca-grímu og skellihlæja hefur án efa slegið í gegn á netinu en horft hefur verið 135 milljón sinnum á það á aðeins fjórum dögum.

Myndbandið er fjórar mínútur að lengd og sýnir Candace Payne útskýra af hverju hún keypti sér Star Wars-leikfang í tilefni afmælis síns. Svo skellir hún grímunni á sig í bílnum og hlær stjórnlaust á meðan gríman gefur frá sér hljóðin sem Chewbacca er m.a. þekktur fyrir.

„Ég bjóst ekki við því að hlæja svona mikið,“ sagði Payne í útvarpsviðtali hjá NPR á dögunum. „Ég bara vissi ekki að Chewbacca væri svona glaður á svipinn!“

Payne kom fram í Goodmorning America í morgun þar sem hún sagði að hún hefði ekki farið í búðina til þess að skoða dót. „Ég var þarna til þess að finna mér jógabuxur. Ég er að reyna að hreyfa mig meira,“ útskýrði Payne. En svo hætti hún við og ákvað frekar að finna leikfang fyrir börnin sín. „Ég rek mig í kassa og hann gefur frá sér þetta hljóð. Ég hafði séð svona grímur en vissi ekki af hljóðinu fyrr en þá.“

Payne ákvað að kaupa sér grímuna. „Ég hugsaði að ég þyrfti þessa grímu, ekki börnin mín, heldur ég.“

Eftir að hún fór úr búðinni þurfti hún að sinna nokkrum erindum en eftir það ákvað hún að prófa grímuna. „Ég hugsaði bara, ég hef hálftíma áður en ég þarf að sýna ábyrgð og sækja börnin mín úr skólanum og þegar þau sjá þetta fæ ég aldrei að sjá hana aftur,“ útskýrði Payne og bætti við að hún hafi ákveðið að sýna frá því í beinni þegar hún prófaði grímuna. 

Payne er tveggja barna móðir og býr í Texas. Síðan myndbandið sló í gegn hefur orðið gífurleg söluaukning á Chewbacca-grímunni og er hún uppseld á mörgum stöðum í Bandaríkjunum. Hún segist þó aðallega þakklát fyrir að hafa fengið fólk til þess að hlæja.


mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant