Gaf heimilislausum manni Búlluborgara

David Beckham færði manninum hamborgara.
David Beckham færði manninum hamborgara. Skjáskot Daily Mail

Fótboltakappinn fyrrverandi, David Beckham, er sérlega hrifinn af Hamborgarabúllunni, eða Tommi‘s Burger Joint, líkt og staðurinn nefnist í Bretlandi.

Á dögunum skellti hann sér, ásamt þremur börnum sínum, út að snæða og keypti í leiðinni borgara fyrir heimilislausan mann sem hann rakst á fyrir utan staðinn.

„David kom út með hamborgara og bjórflösku í vasanum. Þegar hann rétti heimilislausa manninum hamborgarann lifnaði yfir honum,“ sagði ónefndur heimildarmaður í samtali við The Sun.

„Þeir spjölluðu svolitla stund og hlógu, síðan fór David aftur til fjölskyldu sinnar.“

David Beckham finnst gott að fá sér Búlluborgara.
David Beckham finnst gott að fá sér Búlluborgara. Skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson