Dreymdi að hann hefði fitnað um 70 kg

Valdimar Guðmundsson.
Valdimar Guðmundsson. mbl.is/Styrmir Kári

„Mig dreymdi hræðilegan draum. Dreymdi að ég hefði bætt á mig 70 kílóum. Það var hræðilegt. En það jákvæða við þennan draum er að núna hef ég aldrei verið einbeittari í markmiði mínu. Koma svo,“ segir Valdimar Guðmundsson söngvari á facebooksíðu sinni rétt í þessu. 

Valdimar er maraþonmaðurinn í ár en hann ætlar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Valdimar hefur glímt við ofþyngd um langt skeið en hann byrjaði að fitna fyrir alvöru þegar hann hætti að spila körfubolta með Keflavík um tvítugt. Í framhaldinu versnaði mataræði hans ákaflega mikið eins og hann sagði frá í viðtali við Smartland Mörtu Maríu á dögunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant