Hegðun ungstirnisins Justin Biebers hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarið, en margir telja hann vera við það að kikna undan álagi.
Frétt mbl.is: Líður líkt og dýri í búri
Á sunnudaginn kom söngvarinn fram á Billboard-tónlistarverðlaununum, þar sem hann tók einnig á móti verðlaunum fyrir bestu frammistöðu karlkyns listamanns.
Bieber sendi skömmu síðar frá sér yfirlýsingu á Instagram-síðu sinni, þar sem hann lýsti því yfir að hann kynni ekki að meta verðlaunaafhendingar sem þessar.
„Mér líður ekki vel á þeim, eða að þeim loknum. Ég reyni að líta á þetta sem fögnuð, en get ekki varist þeirri hugsun að fólk sé að gagnrýna framkomu mína. Margir í áhorfendahópnum virðast hafa miklar áhyggjur af því hvað þeir fá mikinn tíma í mynd, og hvernig þeir geta bætt tengslanetið sitt. Þegar ég kem fram á venjulegum tónleikum finnst mér fólk vera þar á réttum forsendum. Til þess að skemmta sér.“
Bieber sagði einnig að honum þætti verðlaunaafhendingar innihaldslausar.
„Þegar ég lít í áhorfendaskarann sé ég fullt af fólki gera sér upp bros, svo það líti út fyrir að vera hamingjusamt þegar myndavélinni er snúið að því.