Jay Z svarar fyrir sig

Hjónakornin skelltu sér út að borða sama dag og nýja …
Hjónakornin skelltu sér út að borða sama dag og nýja lagið leit dagsins ljós. Ljósmynd / skjáskot Mirror.co.uk

Beyoncé gerði allt vitlaust fyrir skemmstu þegar hún sendi frá sér plötuna Lemonade, en platan er meðal annars talin fjalla um hjúskaparbrot eiginmannsins, Jay Z.

Rapparinn hefur nú svarað fyrir sig, en í gær kom út endurhljóðblöndun á laginu „All the Way Up“ með tónlistarmanninum Fat Joe. Jay Z bregður fyrir í laginu, þar sem hann rappar um plötu eiginkonunnar.

„Þú veist þú hefur „meikað“ það þegar hjónaband þitt er margra milljóna virði,“ segir rapparinn og bætir við að límonaði sé vinsæll drykkur.

Fregnir herma að þetta muni ekki verða í síðasta sinn sem rapparinn tjáir sig um plötu eiginkonu sinnar, en samkvæmt frétt Mirror hyggjast hjónin senda frá sér nýja plötu á næstunni.

„Jay og Beyoncé ætluðu aldrei að veita viðtöl til að svara þeim spurningum sem vöknuðu eftir útkomu Lemonade. Það er meira þeirra stíll að tjá sig í gegnum tónlist,“ er haft eftir ónefndum heimildamanni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson