Svarar nettröllum fullum hálsi

Amy Schumer er hundleið á athugasemdum nettrölla sem þreytast ekki …
Amy Schumer er hundleið á athugasemdum nettrölla sem þreytast ekki á því að setja út á vaxtarlag hennar. AFP

Holdafar gamanleikkonunnar Amy Schumer hefur lengi verið á milli tannanna á fólki og hafa nettröll verið gjörn á að tjá sig um vaxtarlag hennar á neikvæðum nótum.

Schumer er þó með munninn fyrir neðan nefið og fullfær um að svara fyrir sig. Þetta sannaði hún, enn á ný, eftir að myndir af henni á sundfötum fóru í dreifingu á netinu.

„Ég vona að þið finnið einhverja gleði í lífi ykkar í dag og eigið í samskiptum við fólk, í stað þess að skrifa óvingjarnlegar athugasemdir til fólks sem þið hafið aldrei hitt,“ skrifaði leikkonan í færslu á Instagram, sem tileinkuð var nettröllum.

„Svona lít ég út. Ég er hamingjusöm. Mér finnst ég líta út fyrir að vera sterk og heilbrigð.“

Frétt mbl.is: Segist ekki vera í yfirstærð

 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson