Tekin saman aftur

Hjónakornin eru tekin saman aftur.
Hjónakornin eru tekin saman aftur. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Hjartaknúsarinn Patrick Dempsey er tekinn aftur saman við eiginkonu sína til 15 ára, Jillian Fink, en hún sótti um skilnað frá leikaranum í janúar.

Dempsey tjáði sig um sambandið í viðtali við tímaritið Evening Standard, þar sem hann viðurkenndi að hjónakornin væru þó enn að vinna í sambandinu.

„Já, ég held það. Maður verður að vinna í hlutunum, og maður getur ekki gert allt. Sumu verður maður að fórna,“ sagði leikarinn, spurður hvort hann og eiginkonan hefðu náð sáttum.

Dempsey, sem er mikill áhugamaður um kappakstur, viðurkenndi að hann hefði tekið sér svolítið frí frá sportinu til að einbeita sér að fjölskyldulífinu.

„Ég hef eiginlega stigið til hliðar. Ég er eigandi liðsins, en tíminn líður svo hratt og ég vil ekki missa af uppvexti barnanna minna.“

Hjónin eiga saman þrjú börn á aldrinum níu til fjórtán ára.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant