Vandræðaleg plata skýtur upp kollinum

Victoria Beckham brallaði ýmislegt áður en hún helgaði sig tískunni.
Victoria Beckham brallaði ýmislegt áður en hún helgaði sig tískunni. Ljósmynd / Skjáskot Daily Mail

Stúlknasveitin Kryddpíurnar lagði upp laupana árið 2000 eftir farsælan feril. Í kjölfarið tók Victoria Beckham, eða fína kryddið, að sér ýmis verkefni innan tónlistargeirans áður en hún ákvað að söðla um og helga sig tískunni.

Nýlega dúkkaði áður óútgefin plata söngkonunnar upp, en árið 2004 reyndi hún fyrir sér sem RnB- og hip hop-stjarna. Með æði misjöfnum árangri myndu sumir segja.

Platan, sem kallast Come Together, var á dögunum seld á eBay, en nú hefur henni bæði verið hlaðið upp á Soundcloud og YouTube líkt og fram kemur í frétt Daily Mail.

Beckham vann plötuna í samstarfi við Damon Dash, einn stofnanda Roc-A-Fella Records, en hann hefur meðal annars unnið með Jay-Z og Ol‘Dirty Bastard.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant