Stórleikkonan Faye Dunaway var á dögunum viðstödd amfaR-kvöldverðinn á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Mikið var um dýrðir og glæsilegar veitingar á boðstólum.
Leikkonan, sem til að mynda er þekkt fyrir hlutverk sín í kvikmyndunum Bonnie and Clyde og Chinatown, er greinilega ekki á þeim buxunum að þyngjast en hún vigtaði ofan í sig veitingarnar.
„Hún sat við borðið og dró fram vigt úr bréfpoka,“ er haft eftir ónefndum heimildarmanni Page Six.
„Hún bað um mjög bragðdaufa máltíð, síðan hófst hún handa við að vigta matinn. Hún vigtaði allan matinn, þar með talinn fiskinn og salatið. Við höfum séð margar stjörnur gera skringilegar kröfur, en þetta var svo sannarlega skrýtið.“