Ætlar ekki að svara slúðri og sögusögnum

Johnny Depp vonar að skilnaðurinn gangi hratt og örugglega í …
Johnny Depp vonar að skilnaðurinn gangi hratt og örugglega í gegn. AFP

Stórleikarinn Johnny Depp vonar að skilnaður hans og leikkonunnar Amber Heard gangi hratt og örugglega í gegn.

Heard sótti um skilnað frá leikaranum á mánudaginn síðastliðinn, nokkrum dögum eftir að móðir leikarans lést. Hún hefur farið fram á að Depp greiði henni framfærslueyri, en hjónakornin gerðu ekki með sér kaupmála áður en þau giftu sig. Depp hefur farið fram á að kröfum leikkonunnar verði hafnað.

Frétt mbl.is: Depp kominn með stjörnulögfræðing

Talsmaður Depp sendi í kjölfar tíðindanna frá sér yfirlýsingu, þar sem hann segir leikarann ekki ætla að svara slúðursögum um einkalíf sitt.

„Johnny ætlar ekki að svara klúrum sögusögnum, slúðri, villandi upplýsingum og lygum um einkalíf sitt. Vonandi mun upplausn hans stutta hjónabands ganga hratt og örugglega í gegn.“

Frétt Mirror

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant