Hrafninn á hvíta tjaldið

Vilborg Davíðsdóttir á söguslóðum Hrafnsins, við rústir biskupssetursins í Görðum …
Vilborg Davíðsdóttir á söguslóðum Hrafnsins, við rústir biskupssetursins í Görðum í Igaliku á Suður-Grænlandi. ljósmynd/Forlagið

Kvikmyndagerðarmennirnir Bergsteinn Björgúlfsson og Ólafur Darri Ólafsson hafa gert samning við Vilborgu Davíðsdóttur rithöfund um gerð handrits og kvikmyndar byggðrar á skáldsögu hennar Hrafninum. Kvikmyndamiðstöð Íslands hefur veitt Köggli sf., fyrirtæki Bergsteins, styrk til handritsskrifa og er hann þegar byrjaður á verkinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Forlaginu.

Hrafninn kom út árið 2005 hjá Máli og menningu og var Vilborg tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bókina. Útgáfurisinn Bertelsmann gaf Hrafninn út fyrir fáum árum í Þýskalandi undir titlinum Die Winterfrau og hefur verkið hlotið afar góðar viðtökur þar.

Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur.
Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur. ljósmynd/Forlagið

Hrafninn gerist á Grænlandi um miðja 15. öld og segir frá ungri inúítakonu, Naaju, sem er angakoq eða andakallari í þorpi við Diskóflóa, og Íslendingnum Mikjáli frá Eystribyggð. Leiðir þeirra liggja saman eftir að Naaja er rekin í útlegð og bjargar lífi Mikjáls þegar ísbjörn ræðst á hann og félaga hans í veiðiferð. Öðrum þræði fjallar Hrafninn um ráðgátuna um örlög norrænu byggðanna sem stofnað var til af landnemum frá Íslandi skömmu fyrir aldamótin 1000 en þær hurfu sporlaust í þoku tímans um fjórum öldum eftir leiðangur Eiríks rauða til Grænlands.

„Ég hef ekki losnað við þessa sögu úr höfðinu síðan ég las hana 2010, mér fannst hún strax svo tilvalin á tjaldið. Svo þegar ég sýndi Ólafi Darra hana og hann hvatti mig til að gera þetta bara sjálfur þá ákvað ég að slá til og hann mun framleiða með mér,“ er haft eftir Bergsteini í tilkynningunni.

Bergsteinn er margverðlaunaður kvikmyndatökustjóri og hefur stýrt kvikmyndatökum á fjölda mynda og sjónvarpsþáttaraða. Þar má meðal annars nefna Hross í oss, Djúpið, Svartur á leik, Mýrina, Reykjavík Rotterdam, XL, Fyrir framan annað fólk, Börn, Foreldrar, Bjarnfreðarson, Vaktaseríurnar og Ófærð. Ólaf Darra þarf vart að kynna enda einn af vinsælustu leikurum landsins. Færri vita að hann hefur jöfnum höndum komið að framleiðslu margra verkefna. Má þar til dæmis nefna Börn, Foreldra, Sveitabrúðkaup og XL.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant