„Fólk er ekki heimskt“

Hvorki Cyrus né Hemsworth hafa viljað tjá sig um sambandið.
Hvorki Cyrus né Hemsworth hafa viljað tjá sig um sambandið. Skjáskot Daily Mail

Samband Miley Cyrus og Liam Hemsworth hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarið, en þau eru talin hafa tekið upp þráðinn að nýju síðla síðasta árs.

Skötuhjúin áttu áður í sambandi, en þau slitu trúlofun sinni árið 2013.

Fjölmiðlar hafa farið mikinn undanfarna mánuði, og flutt fréttir af sambandi stjarnanna, enda hafa þau oftsinnis sést saman. Auk þess sem Cyrus hefur ítrekað sést skarta trúlofunarhringnum sem Hemsworth gaf henni hér um árið.

Hvorugt þeirra hefur þó viljað tjá sig um sambandið, en á dögunum sagði leikarinn að fólk væri fært um að draga sínar eigin ályktanir.

„Fólk mun finna út úr þessu. Það gerir það alltaf, fólk er ekki heimskt,“ sagði leikarinn í samtali við ástralska GQ, án þess að vilja fara nánar út í þá sálma.

„Ég byggi ákvarðanir mínar á því sem mun gera mig hamingjusaman, því sem ég tel rétt og því sem mig langar að gera. Ég hef ekki miklar áhyggjur umfram það.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant