Leikkonan Lizzy Kaplan, sem fer með hlutverk í þáttunum Masters of Sex, segir að karlmenn ættu að fá jöfn tækifæri á að sýna nekt í sjónvarpi og konur.
„Mér líður líkt og Michael sé meira en viljugur til að sýna hold,“ sagði leikkonan um mótleikara sinn, Michael Sheen. „Hann er bara að bíða eftir því að verða spurður,“ greindi leikkonan frá í viðtali við tímaritið Rhapsody.
„Hins vegar er nekt karlmanna sérstaklega truflandi. Hún slær mann svolítið út af laginu, þrátt fyrir að vera mynduð á afar smekklegan hátt.“