Minnir eiginmanninn á framhjáhaldið daglega

Katie Price og eiginmaður hennar, Kieran Hayler.
Katie Price og eiginmaður hennar, Kieran Hayler. Ljósmynd skjáskot Mirror.co.uk

Fyrrverandi glamúrfyrirsætan Katie Price uppgötvaði hjúskaparbrot eiginmanns síns, Kieran Haylers, fyrir tveimur árum þegar upp komst að hann hafði haldið við vinkonu hennar.

Hjónakornin ákváðu þó að reyna að vinna í sambandinu og tók Price því aftur við eiginmanninum eftir að hafa slitið sambandinu tímabundið.

Price virðist þó ekki hafa gleymt glappaskotum eiginmannsins, en hún er sögð fylgjast grannt með honum líkt og fram kemur í frétt Mirror.

„Kieran er minntur á það daglega að hún hefur ekki sagt skilið við fortíðina,“ er haft eftir ónefndum heimildamanni.

„Hún hleypir honum sjaldan úr augsýn sinni og er sífellt að spyrja hann hvað hann hafi verið að gera. Hún virðist enn vera heltekin og hefur sagt vinum sínum að þetta sé enn að kvelja hana, tveimur árum síðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson