Neitar ásökunum um fjárkúgun

Amber Heard neitar ásökunum þess efnis að hún sé að …
Amber Heard neitar ásökunum þess efnis að hún sé að kúga fé út úr leikaranum. AFP

Hjónaband Amber Heard og Johnny Depp hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarið, en Heard sótti um skilnað á dögunum. Í kjölfarið fór hún fram á nálgunarbann á hendur Depp, en dómstóll úrskurðaði að hann þyrfti að halda sig fjarri leikkonunni.

Heard heldur því fram að Depp hafi beitt hana líkamlegu, sem og andlegu, ofbeldi á meðan samband þeirra stóð auk þess sem hún segir leikarann eiga í erfiðleikum með skap sitt.

Eftir að fréttir að skilnaðinum bárust sendi grínistinn og vinur Depps, Doug Stanhope, frá sér opið bréf sem birtist á vefnum Wrap. Þar heldur hann því fram að Heard sé að reyna að kúga fé út úr leikaranum með upplognum sökum.

Lögmaður Heard sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu, þar sem farið var fram á að pistillinn yrði tekinn úr birtingu auk þess sem ásökunum var vísað á bug.

„Ásakanirnar á hendur Heard eru algerlega og ótvírætt upplognar,“ segir í bréfi frá lögmanni leikkonunnar, Peter Sample, sem segir afar óviðeigandi af vefmiðlinum að hafa birt pistilinn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson