Væri til í að leika Bond

Emilia Clarke myndi gjarnan vilja taka að sér hlutverk Jane …
Emilia Clarke myndi gjarnan vilja taka að sér hlutverk Jane Bond. AFP

Leikkonan Emilia Clarke, sem líklega er þekktust fyrir að túlka drekamóðurina sjálfa í Game of Thrones, segist gjarnan vilja leika Jane Bond.

Þá segist hún líka ekki eiga í erfiðleikum með að nefna hinn fullkomna mótleikara.

„Ég á mér fullt af draumum. Ég myndi gjarnan vilja leika Jane Bond. Fullkominn mótleikari væri síðan Leonardo DiCaprio. Á því væri enginn vafi,“ sagði leikkonan í viðtali við Daily Star.

Ef hugmyndir leikkonurnar yrðu að veruleika yrði DiCaprio fyrsti Bond-gæinn. Fjölmargar leikkonur hafa hingað til farið með hlutverk ástkvenna njósnara 007, og eru þær jafnan kallaðar Bond-stúlkur. Ólíklegt verður þó að teljast að njósnari hennar hátignar verði leikinn af konu í bráð.

Miklar vangaveltur hafa verið um hver taki við af Daniel Craig, sem hefur farið með hlutverk Bonds síðustu árin. Margir leikarar hafa verið nefndir í því samhengi, til að mynda Tom Hiddleston, Tom Hardy og Idris Elba.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson