Íhugar að fá nálgunarbann á Odom

Khloé Kardashian er sögð óttast Lamar Odom.
Khloé Kardashian er sögð óttast Lamar Odom. Ljósmynd / skjáskot Mirror

Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian er sögð íhuga að sækja um nálgunarbann á hendur eiginmanni sínum, Lamar Odom.

Kardashian og Odom slitu reyndar sambandi sínu árið 2013 eftir fjögurra ára hjónaband. Skilnaðurinn hafði þó ekki gengið í gegn á síðasta ári, þegar Odom fannst rænulaus á vændishúsi í Nevada. Kardashian ákvað þá að slá skilnaðnum á frest þar til Odom næði heilsu.

Frétt mbl.is: Sækir um skilnað á ný

Nú herma fregnir að samband skötuhjúanna sé ekki upp á sitt besta og er Odom sagður ósáttur við framgang mála.

„Hann missti gjörsamlega stjórn á sér, kallaði hana öllum illum nöfnum og öskraði á hana fyrir að brjóta loforð sem hún gaf honum á dánarbeði hans,“ er haft eftir ónafngreindum heimildamanni vefmiðilsins Radar Online.

Þá heldur heimildamaðurinn því einnig fram að Odom hafi sent Kardashian fjöldann allan af óviðeigandi og ógnandi skilaboðum.

„Lamar hefur látið rigna yfir hana hatrömmum skilaboðum og sundurlausu drykkjurausi sem er farið að hræða hana. Hann er staurblankur og hún er síðasta uppspretta hans fyrir peninga.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant