Henti Odom öfugum út

Khloé Kardashian er sögð hafa hent sínum fyrrverandi öfugum út.
Khloé Kardashian er sögð hafa hent sínum fyrrverandi öfugum út. Skjáskot Mirror

Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian er búin að fá sig fullsadda á drykkjulátum fyrrverandi eiginmanns hennar, Lamar Odoms, sem hún hefur nú látið bera út úr íbúð sinni.

Stjarnan leigði húsnæði fyrir Odom eftir að hann var  útskrifaður af spítala, en hann fannst rænulaus á vændishúsi á síðasta ári og var vart hugað líf eftir að hafa tekið of stóran skammt fíkniefna.

Undanfarið hefur Odom þó setið að sumbli við ýmis tækifæri, sem hefur ekki farið vel í fyrrverandi spúsu hans.

„Khloé þurfti að setja honum stólinn fyrir dyrnar og hætta að hjálpa honum. Hún vill vera hluti af lífi hans, en einungis ef hann er heilbrigður,“ sagði ónefndur heimildamaður Us Weekly.

Þá er því einnig haldið fram að Kardashian og Odom talist ekki lengur við og að stjarnan líti svo á að hún hafi gert allt sem í hennar valdi stendur til að hjálpa fyrrverandi eiginmanni sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant