Taylor Swift og Tom Hiddleston nýjasta parið?

Tom Hiddleston og Taylor Swift eru sögð vera að slá …
Tom Hiddleston og Taylor Swift eru sögð vera að slá sér upp. Ljósmynd / skjáskot The Sun

Taylor Swift og skoski plötusnúðurinn Calvin Harris slitu sambandi sínu nýverið en þau höfðu verið par í rúmt ár.

Ef marka má nýjustu fregnir er Swift búin að jafna sig á sambandsslitunum en hún er talin vera að slá sér upp með breska leikaranum Tom Hiddleston.

Skötuhjúin kynntust í maí þegar þau sóttu Met Gala-fögnuðinn og segja sjónarvottar að vel hafi farið á með þeim.

Á dögunum náðust síðan myndir af skötuhjúunum þar sem þau sjást láta vel að hvort öðru líkt og fram kemur í frétt The Sun.

Skilnaður Swift og Harris var sagður gerður í góðu en samkvæmt frétt Daily Mail er plötusnúðurinn ekki ánægður með framgang mála. Hann hefur nú eytt öllum ummerkjum um Swift á samfélagsmiðlum sínum.

Skötuhjúin hittust á Met Gala-fögnuðinum sem fram fór í maí …
Skötuhjúin hittust á Met Gala-fögnuðinum sem fram fór í maí en vel fór á með þeim. Ljósmynd / skjáskot The Sun
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant