Katie Price stærir sig af brjóstunum

Katie Price.
Katie Price. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Fyrrverandi glamúrfyrirsætan Katie Price, sem á sínum tíma var þekkt undir nafninu Jordan, gekkst undir sína áttundu brjóstastækkun á dögunum.

Samkvæmt umfjöllun Mirror gekkst Price undir aðgerðina í síðustu viku en hún flaug til Brussel til að leggjast undir hnífinn.

Price er enginn nýgræðingur þegar kemur að fegrunaraðgerðum en fyrir skemmstu gekk hún undir nokkrar aðgerðir á sama bretti. 

Frétt mbl.is: Splæsti í fullt af fegrunaraðgerðum

Price, sem er ófeimin við að deila lífi sínu á samfélagsmiðlum, greindi frá aðgerðinni á Instagram-síðu sinni, þar sem hún sagðist vera í skýjunum með afraksturinn.

„Loksins hef ég náð að gróa. Ég er glöð og loksins með æðisleg brjóst,“ skrifaði stjarnan við færslu sína.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant